Aron Pálmi enn í Beaumont 22. september 2005 00:01
Nýjustu fréttir af Aroni Pálma eru þær að hann enn staddur í Beumont. Rútuferðinni til Austin hefur verið frestað og er hann nú í umsjón Rauða krossins í borginni og er verið að skipuleggja brottflutning fjölda manns. Ekki er vitað hvert farið verður með fólkið. Aron Pálmi Ágústsson yfirgaf heimili sitt í Beumont um klukkan þrjú í dag eftir að sendiráð Íslands í Washington útvegaði honum rútumiða til Austin í Texas. Aron Pálmi óttaðist mjög um líf sitt þar sem hann hélt að leyfið bærist of seint, en fellibylurinn Ríta stefnir á bæinn. Aron Pálmi, sem hefur sætt refsivist í Bandaríkjunum í átta ár, býr í borginni Beaumont sem er rétt við fylkjamörk Texas og Louisiana. Talið er að fellibylurinn Ríta fari meðal annars yfir borgina og hafa yfirvöld hvatt íbúa til að yfirgefa svæðið. Fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar hefur verið í stöðugu sambandi við Aron Pálma frá því snemma í morgun en í gærkvöldi skrifaði hann stuðningsmannahópi sínum bréf þar sem hann lýsti áhyggjum sínum af gangi mála. Hann óttaðist mjög um líf sitt og hann var hræddur um að ef hann fengi leyfi til að fara væri það orðið of seint, en allir nágrannar hans yfirgáfu borgina í gærkvöldi og í nótt. Aron Pálmi er á skilorði og hann er með sérstakt senditæki um fótinn þar sem hægt er að fylgjast með öllum hans ferðum. Í gærkvöldi ræddi Aron Pálmi við skilorðsfulltrúa sinn sem sagði að hann mætti ekki yfirgefa svæðið fyrr en neyðarástandi yrði lýst yfir. Í morgun náði hann ekki í skilorðsfulltrúa sinn og á tímabili var hann að hugsa um að fara af stað fótgangandi úr bænum. Það var svo klukkan þrjú að íslenskum tíma sem hann fékk staðfestingu á því frá sendiráði Íslands í Washington að búið væri að útvega honum flugmiða til Austin í Texas þangað sem hann verður kominn í kvöld. Hann mun þó ferðast algjörlega á eigin vegum. Aðspurður hvort hann ætti skyldfólk þar neitaði Aron Pálmi því en hann sagðist þó ætla að reyna að hitta fjölskyldu sína. Þrátt fyrir að hann sé að fara óttast hann hvað muni taka við. Aron Pálmi segist ánægður að hann sé að fara en hann óttist að hann missi allar eigur sínar.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira