Íbúar í Houston þurfa að fara 21. september 2005 00:01
Borgarstjórinn í Houston í Texas, Bill White, tilkynnti í dag að allir íbúar sem byggju á svæðum sem lægju lágt og hætta væri á að flæddi yfir skyldu yfirgefa borgina á morgun vegna komu fellibylsins Rítu. Almannavarnir á svæðinu segja að allt að ein milljón manna í borginni verði að fara en búist er við Ríta taki land við Galveston, suðaustur af Houston, á föstudag eða laugardag. Ríta flokkast nú sem fjórða stigs fellibylur og er þar með orðin öflugri en Katrín þegar hún skall á suðurströnd Bandaríkjanna. Óttast er að Ríta kunni að valda gríðarlegi eyðileggingu í Texas og í Louisiana en búist er við að mikil flóð muni fylgja henni. Hefur öllum þeim sem snúið höfðu aftur til New Orleans verið skipað að fara aftur burt. Um 500 rútur eru sagðar í New Orleans og er þeim ætlað að flytja fólk burt, en ekki hefur tekist að gera fullkomlega við varnargarða við borgina eftir yfirreið Katrínar og því er óttast að þeir gefi eftir. Yfirvöld í Texas og Louisiana sem og alríkisstjórnin búa sig nú undir að hamfarirnar sem fylgja Rítu geti orðið jafnmiklar og þegar fellibylurinn Katrín reið yfir fyrir um þremur vikum, en þau sættu mikilli gagnrýni fyrir seinagang og fyrir að koma ekki fátæku fólki til bjargar. Bill White, borgarstjóri í Houston, hefur varað við því að ekki verði nóg af farartækjum á vegum stjórnvalda til að flytja fólk burt og hvetur vini og nágranna til að hjálpa hver öðrum í þeim málum. Fyrr í dag hafði íbúum í Galveston í Texas verið skipað að yfirgefa heimili sín en talið er að Ríta taki land þar um slóðir.
Erlent Fréttir Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Erlent Fleiri fréttir Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán