Erlent

Höfnuðu ráðherraefni Júsjenkó

Úkraínskir þingmenn höfnuðu í dag manninum sem Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu, vill fá sem næsta forsætisráðherra landsins. Tvö hundruð tuttugu og þrír þingmenn greiddu atkvæði með því að Júrí Jekanúrov tæki við embætti forsætisráðherra. Jekanúrov þurfti atkvæði þriggja þingmanna í viðbót til að þingið samþykkti skipun hans. Niðurstaða þingsins þykir mikið áfall fyrir Júsjenkó forseta en staða hans er mun veikari en áður eftir að hann rak Júlíu Tímósjenkó, forsætisráðherra sinn. Júsjenkó mun leggja aftur til við þingið að Jekanúrov verði skipaður forsætisráðherra og leita samninga við þingmenn til að tryggja frambjóðanda sínum meirihlutafylgi á þingi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×