Erlent

Enginn lýst ábyrgð á sprengingunni

Sprengjan sem sprakk í breska sendiráðinu í Zagreb í Króatíu í morgun var bréfasprengja, að því er greinir frá á vef BBC. Einn starfsmaður sendiráðsins meiddist lítillega á fæti við sprenginguna. Enginn hefur enn lýst ábyrgð á verknaðinum en forsætisráðherra Króatíu sagðist í dag telja að aðilar sem séu á móti inngöngu Króata í Evrópusambandið hafi staðið á bak við sprengjuárásina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×