Erfitt gæti orðið að mynda stjórn 18. september 2005 00:01
Í Þýskalandi óttast menn skammlífa stjórn og erfiðar og langvinnar stjórnarmyndunarviðræður eftir kosningarnar í gær, en ljóst er að stjórn jafnaðarmanna og græningja er fallin. Kjörsókn var svipuð og síðast, eða undir 80 prósentum, þannig að jöfn staða stóru fylkinganna náði ekki að draga fólk á kjörstað. Angela Merkel náði ekki meirihlutanum sem hún vonaðist eftir og þó svo að hún fái umboð til stjórnarmyndunar er óvíst að henni gangi vel að fá aðra flokka til samstarfs. Tölur í gær sýndu að bæði meirihlutasamstarf hægri og miðjuflokka og miðju- og vinstriflokka er út úr myndinni. Því þyrfti að fara nýjar leiðir í stjórnarmyndun, eða þá að mynduð yrði minnihlutastjórn, en sú staða hefur ekki komið upp áður á landsvísu í Þýskalandi. Gerhard Schröder kanslari var í gær ófáanlegur til að játa sig sigraðan og sagðist enn myndu geta leitt næstu ríkisstjórn. Helst er horft til þess að stóru fylkingarnar tvær með Merkel og Schröder í broddi fylkingar nái saman um stjórnarsamstarf, en þó telja margir að það gæti tekið nokkurn tíma að ná þeirri lendingu. Búist er við að Merkel byrji með stjórnarmyndunarumboð, en til að Schröder fái kanslaraembættið, þyrfti henni fyrst að mistakast og hann tæki þá við umboðinu. Þá eru uppi nokkrar efasemdir um að flokkarnir gætu náð saman í stórum málum og gæti slík stjórn þýtt að frestur yrði á aðgerðum til efnahagsumbóta í landinu. Vinstristjórn með jafnaðarmönnum, græningjum og nýja Vinstriflokknum þykir hins vegar ólíkleg þar sem Óskar Lafontaine hefur alfarið hafnað því að geta unnið með Schröder. Þá hafa Merkel og Schröder bæði sagt samstarf við Lafontaine útilokað. Þá hefur verið talað um mögulega "umferðarljósastjórn" en þar er vísað til flokkslista jafnaðarmanna, græningja og frjálslyndra demókrata (rauður, grænn og gulur). Guido Westerwelle, leiðtogi frjálslyndra, hefur hins vegar frekar sagst vilja vera í minnihluta en taka þátt í slíku samstarfi. Þá væri möguleg hægristjórn með vinstrisveiflu þar sem kristilegir demókratar og frjálslyndir nytu stuðnings græningja. Frjálslyndir og græningjar hafa lengi eldað grátt silfur, en í slíkri stjórn hefðu þó báðir smáflokkarnir möguleika á að vera í stjórn, hversu ólíklegt sem slíkt samstarf annars kynni að vera.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Sjá meira