Erlent

Sagði offitu stríð á hendur

Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, sagði í dag offitu stríð á hendur þegar hann undirritaði lög sem banna tiltekinn skyndibita í menntaskólum landsins. Schwarzenegger, sem er þekktur líkamsræktarkappi, sagði við undirritun laganna að Kaliforníuríki stæði frammi fyrir offitufaraldri og nú væri kominn tími til að spyrna við fótum. Með lögunum verður bannað að selja gosdrykki í menntaskólum ríkisins frá og með árinu 2007. Þá mega pítsur og annar skyndibiti ekki innihalda meira fjögur grömm af fitu í hverjum 100 kaloríum og hver skyndibiti má ekki vera meira en 400 kaloríur. Næringarfræðingar í skólum hafa fagnað löggjöfinni en ekki er víst að skólayfirvöld geri slíkt hið sama þar sem skólarnir fá hundruð þúsunda dala ár hvert frá fyrirtækjum gegn því að þau fái að selja vörur sínar í skólunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×