Erlent

Endurheimtu málverk eftir fimm ár

Danska lögreglan endurheimti í dag sjálfsmynd af hollenska listmálaranum Rembrandt sem rænt var á sænska þjóðminjasafninu fyrir nærri fimm árum. Um leið handtók hún fjóra menn sem höfðu reynt að selja myndina á hóteli í Kaupmannahöfn. Myndin, sem er frá 18. öld, er metin á 2,4 milljarða króna, en vopnað gengi rændi henni ásamt tveimur öðrum meistaraverkum eftir franska impressjónistann Renoir í desember árið 2000. Önnur þeirra fannst árið 2001 en hinnar enn leitað. Fjórmenningarnir sem gripnir voru með mynd Rembrandts hafa verið úrskurðaðir í tæplega tveggja vikna gæsluvarðhald, en þeir gætu átt yfir höfði sér sex ára fangelsi verði þeir sakfelldir fyrir ránið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×