Erlent

Hlé verði gert á kjarnorkuviðræðum

Hlé verður gert á morgun á viðræðum Norður-Kóreu við Rússa, Bandaríkjamenn, Suður-Kóreumenn, Kínverja og Japana um að Norður-Kórea láti af kjarnorkuáætlunum sínum ef ekki tekst að ná samkomulagi nú með kvöldinu. Fundir hafa staðið á milli þjóðanna hátt á annan mánuð og lítið hefur þokast í samningsátt. Norður-Kóreumenn eru staðráðnir í því að halda áfram að auðga úran, að sögn í friðsamlegum tilgangi, en hinar þjóðirnar óttast að úranið verði notað til smíða á kjarnorkuvopnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×