Erlent

Átta saknað eftir slys við Síberíu

Óttast er að átta manns hafi farist þegar yfirhlaðið fraktskip sökk undan ströndum Síberíu í Rússlandi í morgun. Um fimmtán manns voru um borð í skipinu þegar óhappið varð og í kringum 80 tonn af ýmsum varningi, en skipið hafði einungis heimild til að hafa um þrjátíu tonna farm. Mjög slæmt veður var á svæðinu þegar skipið sökk. Engar líkur eru taldar á að þeir sem saknað er finnist á lífi þar sem hitastig sjávar á þessum slóðum er við frostmark.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×