Erlent

Flugeldamarkaður sprakk í loft upp

Frægasti flugeldamarkaður í Mexíkó sprakk í gær í loft upp í orðsins fyllstu merkingu. Þrátt fyrir viðvörunarspjöld allt í kringum markaðinn brá einn viðskiptavinurinn á það ráð að kveikja í nýkeyptum flugeldum sínum og afleiðinganna þurfti ekki að bíða lengi. Á aðeins örfáum sekúndum komst eldur í nær alla flugeldana og nærri fimm hundruð fermetra svæði gereyðilagðist og gríðarlegur reykur steig upp. Þrír slösuðust alvarlega og nokkur hundruð manns hlutu smásár eða þurftu áfallahjálp eftir atburðinn. Til allrar hamingju hafði slökkvilið svæðisins búið sig vel undir atburð af þessu tagi og greiðlega gekk að slökkva eldinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×