Erlent

Dó úr fuglaflensu í Indónesíu

Yfirvöld á Indónesíu staðfestu í morgun fjórða dauðsfallið í landinu af völdum fuglaflensu. Þá er annar maður smitaður af flensunni í landinu og staðfest hefur verið að banamein konu sem lést í síðustu viku hafi verið fuglaflensa. Heilbrigðisyfirvöld á Indónesíu óttast er að faraldur sé í aðsigi. Alls hafa nú 64 látist af völdum fuglaflensu í Asíu síðan hennar varð fyrst vart árið 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×