Erlent

Minnihluti hyggst snúa aftur

Minna en helmingur íbúa New Orleans sem hefst við í öðrum borgum ætlar að snúa aftur. Samkvæmt nýrri könnun sem unnin var fyrir dagblaðið Washington Post ætla aðeins 43 prósent íbúanna að snúa aftur en 44 prósent þeirra ætla að koma sér upp heimili annars staðar. Þrátt fyrir að hafa misst heimili sín sögðust níu af hverjum tíu vongóðir um bjarta framtíð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×