Erlent

Fé auðmanna til Vinstriflokksins

Hópur norskra kaupsýslumanna leggur nú allt kapp á að fá kjósendur Hægriflokksins til þess að kjósa Vinstriflokkinn og reyna þannig að tryggja áframhaldandi hægristjórn í landinu í kjölfar þingkosninganna eftir viku. Vinstriflokkurinn er lítill frjálslyndur flokkur með tvo þingmenn. Nái hann fjögurra prósenta fylgi í kosningunum gæti hann fengið allt að sex þingsæti til viðbótar en það gæti dregið mjög úr sigurlíkum rauðgræna bandalagsins með Verkamannaflokkinn í fararbroddi. Stein Erik Hagen kaupsýslumaður hefur þegar látið um tvær og hálfa milljón króna í kosningasjóð Vinstriflokksins og kveðst vilja jafna metin við norska Alþýðusambandið sem hann segir að hafi látið 130 milljónir króna í kosningasjóði rauðgræna bandalagsins. Fleiri hafa látið fé af hendi rakna í sjóði Vinstriflokksins með það fyrir augum að tryggja áframhaldandi setu hægristjórnar Bondeviks. Þeirra á meðal Christen Sveaas kaupsýslumaður sem lagði fjórar milljónir króna í kosningasjóðinn í fyrradag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×