Flestir komnir í neyðarskýli 5. september 2005 00:01
Í morgun var byrjað að flytja hjálpargögn frá Evrópu fyrir hundruð þúsunda flóttamanna af hamfarasvæðunum á suðurströnd Bandaríkjanna. Flestir eru nú loksins komnir í neyðarskýli vítt og breitt um Suðurríkin, viku eftir yfirreið fellibylsins Katrínar. Bandaríkjastjórn reynir að verjast ásökunum um skeytingarleysi og seinagang í björgunaraðgerðum. Fyrstu flugvélarnar hlaðnar teppum, matarpökkum og sjúkragögnum fóru frá Bretlandi í morgun. Evrópusambandslöndin ætla að reyna að samhæfa aðgerðir, en flogið verður með hjálpargögn víða að úr álfunni, svo lengi sem Bandaríkjamenn óska. Chris Stern yfirmaður flutnings hjálpargagna frá Bretlandi segir að önnur flugvél fari með kvöldinu og fjórar á morgun og stöðugur straumur út vikuna. New Orleans hefur nú að mestu leyti verið tæmd af fólki og flestir flóttamennirnir af hamfarasvæðunum hafa fengið skjól í einhverju nágrannaríkjanna. Það er þó ljóst að mun meira þarf til, því ekki geta hundruð þúsunda búið í íþróttahöllum og skyndiskýlum til langframa. Bush eldri og Bill Clinton stýra söfnunarátaki fyrir fórnarlömb fellibylsins. Bill Clinton segir að best væri að einbeita sér að því núna að athuga hvað þingið gerir þegar það kemur aftur saman. Hvar er hægt að finna húsnæði handa fólkinu og þarf það að fá peninga strax. Það er vel tekið á móti flóttamönnunum, þar sem þeir koma og margir eru reiðir fyrir þeirra hönd. Robert Muhammed, segir að þetta segi ýmislegt um kynþætti og stéttamun í Bandaríkjunum. 68% íbúa New Orleans eru af afrísku bergi brotnir og helmingur þeirra lifir undir fátæktarmörkum og þeir sem minnst mega sín voru skildir eftir og hann er viss um að viðbrögðin hefðu verið önnur ef hér hefði verið um aðra stétt og annan kynþátt að ræða..... Condoleezza Rice, utanríkisráðherra heimsótti flóðasvæðin í heimaríki sínu Alabama í gær og hún trúir því ekki að hörundslitur eða stétt hafi skipt nokkru máli við björgunarstörfin. Hún sagðist vera svört og frá Alabama og hún sagðist geta fullyrt að viðbrögðin hefðu ekkert með húðlit að gera. Þarna væru Bandaríkjamenn að hjálpa löndum sínum og enginn vill sjá annan Bandaríkjamenn þjást og hún sagðist ekki geta trúað því að landar hennar hefðu horft upp á aðra þjást. George Bush, Bandaríkjaforseti fór í sína aðra heimsókn á flóðasvæðin í dag ásamt konu sinni, Lauru. Hann hefur heitið því að uppbyggingarstarf hefjist sem fyrst og til þess verði varið því fé sem þarf. Það er þó langt þangað til það hefst - fyrst er að hreinsa til. Verið er að reyna að bæta flóðvarnargarðana sem brustu á þriðjudaginn, til þess að hægt sé að byrja að dæla vatni á brott. Aðeins er búið að staðfesta 59 dauðsföll í Louisianaríki og um 150 í Mississippi, en menn eru búnir undir það versta. Lík fljóta enn um í flóðavatninu og liggja á götum úti. Líklega skipta fórnarlömbin þúsundum. Og ótalmargir leita ástvina sinna sem ekkert hefur heyrst frá í heila viku.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Tímabært að ræða einhverfu kvenna Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Erlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Fleiri fréttir Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Sjá meira