Erlent

Drápu eftirlýstan uppreisnarmann

Lögregla í Sádi-Arabíu skaut í dag eftirlýstan uppreisnarmann til bana og særði annan í skotbardaga í olíuborginni Dammam. Þá mun hún vera á hælunum á þriðja manninum og hefur umkringt hús þar sem talið er að hann feli sig, eftir því sem Reuters-fréttastofan greinir frá. Skæruliðar á vegum al-Qaida hafa látið að sér kveða í Sádi-Arabíu síðustu tvö ár og hefur 91 látist í tilræðum þeirra. Öryggissveitir drápu í síðasta mánuði Saleh al-Awfi, leiðtoga al-Qaida í landinu, en fjölmargir eru enn á lista yfirvalda yfir eftirlýsta uppreisnarmenn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×