Vaxandi spenna í Noregi 3. september 2005 00:01
Norski Vinstriflokkurinn er nálægt því að ná fjögurra prósenta fylgi samkvæmt nýrri fylgiskönnun Aftenposten. Nái hann því marki í kosningum til Stórþingsins 12. september næstkomandi gæti það ráðið úrslitum um það hvort hægristjórn Kjell Magne Bondevik heldur velli. Vinstri, sem er frjálslyndur flokkur hægra megin við miðju, hefur aðeins tvo þingmenn. Skríði hann yfir fjögurra prósenta markið fær hann sex til sjö þingmenn. Niðurstöður nýju könnunarinnar benda til þess að vinstrabandalag Verkamannaflokksins, Sósíalíska vinstriflokksins og Miðflokksins fengi samanlagt 87 þingsæti af 165. Hægriflokkarnir þurfa því aðeins fimm þingsæti til viðbótar til að tryggja sér meirihluta þingsæta gagnvart vinstrabandalaginu. "Við venjulegar kringumstæður gætum við bætt við okkur einu prósentustigi síðustu vikuna fyrir kosningar. Ég vona að það lykilhlutverk sem við erum komin í skili okkur að því marki," segir Lars Sponheim, formaður Vinstriflokksins, í samtali við Aftenposten. Verkamannaflokkurinn og Framfaraflokkurinn tapa fylgi samkvæmt niðurstöðum nýju könnunarinnar, en stjórnarflokkarnir - Kristilegi þjóðarflokkurinn og Hægriflokkurinn - bæta við sig. Stoltenberg hamrar á þörf kjósenda fyrir styrka meirihlutastjórn. Bondevik og minnihlutastjórn hans hafa þurft að reiða sig á stuðning Framfaraflokksins. Nú andar hins vegar köldu milli Framfaraflokksins og Kristilega þjóðarflokksins, sem telur sig jafnvel eiga meiri samleið með Verkamannaflokknum en Carl I.Hagen og Framfaraflokki hans. Stoltenberg er nauðugur einn kostur að halda fast við kosningabandalag sitt við Sósíalíska vinstriflokkinn og Miðflokkinn og hefur ekki gælt við önnur stjórnarmynstur í átökum sínum við Bondevik í fjölmiðlum. Hann hefur meira að segja hafnað samstarfi við Rauðabandalagið, flokk utarlega á vinstri kantinum, nái það manni á þing. Taugaspennan eykst hins vegar dag frá degi og enn má búast við hreyfingum á fylgi flokkanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Fleiri fréttir Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Sjá meira