Vitar verði nýttir í ferðaþjónustu 3. september 2005 00:01
Margir Norðmenn kjósa að verja sumarleyfisdögunum í vita og njóta norskir eyðivitar og auð vitavarðahús vaxandi vinsælda meðal ferðamanna. Formaður Íslenska vitafélagsins vill að vitar Íslands verði einnig nýttir í þágu íslenskrar strandmenningar. Á skeri einu við vesturströnd Noregs skammt fyrir utan bæinn Florö er Stabben-viti. Þarna býr enginn vitavörður lengur en ferðamönnum býðst hins vegar að leigja vitann til gistingar um lengri eða skemmri tíma. Stein Malkenes, formaður Norska vitafélagsins, segir að fólk komi þangað og gisti í fríum og haldi brúðkaup og veislur. Vitarnir séu þjóðareign og svona sé hægt að nota þá þegar vitaverðirnir séu farnir. Spurður hvort vitarnir séu vinsælir segir Malkenes að þeir séu mjög vinsælir. Í Noregi voru yfir 200 mannaðir vitar en nú eru aðeins fjórir eftir með vitavörðum. Norska ríkið hefur kosið að eiga vitana áfram, öfugt við íslenska ríkið. Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins, segir að því miður hafi íslenska ríkið selt vitajarðirnar og vitavarðarbústaði sem hefðu annars verið upplagðir til atvinnusköpunar, t.d. ferðaþjónustu. Fáir vitar séu nýttir, Galtarviti og Hornbjargsviti en annars séu aðeins fjórar vitajarðir og vitavarðarbústaðir eftir í eigu íslenska ríkisins. Krákunesviti á einum vestasta odda Noregs er einnig nýttur í þágu ferðaþjónustu. Þangað streyma rútubílar með ferðamenn sem vilja sjá öldur Atlantshafsins brjóta á klettum, þarna býðst einnig gisting en vitakaffið er þó vinsælast. Sigurbjörg telur vel unnt að nýta vita Íslands í þágu ferðaþjónustu. Það megi skipuleggja siglingar, vera með ferðaþjónustuna við ströndina og frá sjó. Ferðamönnum hafi hingað til verið stuggað upp á hálendið eins og sauðfé á vorin en ekki sé horft til strandmenningar Íslands. Hugsanlega sé þetta minnimáttarkennd hjá Íslendingum þar sem þetta sé lágstéttarmenning sem Íslendingar hafi ekki alltaf verið mjög stoltir af.
Fréttir Innlent Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Joe Biden með krabbamein Erlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fleiri fréttir Segist ekki taka hagsmuni sela fram yfir hagsmuni íþrótta Saumandi hressar og skemmtilegar bútasaumskonur Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Besta maíveður í manna minnum og ungir ofurhugar Varað við bikblæðingum um land allt Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Tilraun með ræktun hveitis á Íslandi gefur góð fyrirheit Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Eins og að vera fangi í eigin líkama Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sjá meira