Íslendings saknað í Missisippi 2. september 2005 00:01
Íslenskrar konu er saknað í Missisippi. Utanríkisráðuneytið var beðið um að grenslast fyrir um afdrif tveggja Íslendinga sem fjölskyldur hér heima söknuðu eftir fellibylinn Katrínu í Bandaríkjunum. Annar þeirra, karlmaður, kom í leitirnar heill á húfi síðdegis í gær. Pétur Ásgeirsson, hjá utanríkisráðuneytinu sem sér um aðstoð við Íslendinga erlendis, segir fólkið ekki tengjast. Hvort tveggja hafi búið um tíma í Bandaríkjunum og bæði í Missisippi. Allsendis óljós sé hvort eitthvað hafi hent konuna þrátt fyrir að ættingjarnir hafi engar spurnir af henni haft. Konunnar hefur verið leitað frá fyrsta degi og segir Pétur að svo verði þar til hún finnist. Íslenska sendiráðið í Washington hafi biðlað til bandarískra stjórnvalda um upplýsingar en einnig hafi einn ræðismanna Íslendinga þar ytra hringt í Íslendinga til að athuga hvort einhver hafi heyrt í konunni en svo hafi ekki verið. Um tíu þúsund hafa látist í Louisiana, samkvæmt bandaríska öldungardeildarþingmanninum David Vitter. Hann segir að þúsundir flýji til nágrannaríkja. Fyrstu hjálpargögnin bárust í gær með herbílalestum og vopnuðum hermönnum til borgarinnar New Orleans, fjórum dögum eftir að fellibylurinn fór yfir svæðið. Fólk hefur verið vatns- og martarlaust og ríkir glundroði í borginni. Glæpaklíkur fara um rænandi og ruplandi og er talin hætta á að smitsjúkdómar brjótist út. Bandarísk stjórnvöld eru harðlega gagnrýnd fyrir seinagang við björgunarstörfin. Í Washington Post var vitnað í yfirmann björgunaraðgerðanna í New Orleans, Terry Ebbert, sem segir að þær séu þjóðarskömm. "Við förum létt með að senda gríðarlegt magn hjálpargagna til fórnarlamba flóðbylgju í suðurhluta Asíu, en okkur tekst ekki að flytja fólk á brott frá New Orleans," segir Ebbert. Talið er að fimmtíu þúsund manns séu enn strandaglópar í borginni en áttatíu prósent hennar er í kafi.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Erlent Fyrirgefur morðingjanum Erlent ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Innlent Réðst á konur og sló í miðborginni Innlent Bilun hjá fjarskiptafyrirtæki sögð hafa valdið fjórum dauðsföllum Erlent Ofurfellibylurinn Ragasa nálgast Filippseyjar Erlent Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Innlent Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Innlent Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ Innlent Fleiri fréttir Ofurfellibylurinn Ragasa nálgast Filippseyjar Bilun hjá fjarskiptafyrirtæki sögð hafa valdið fjórum dauðsföllum Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Fyrirgefur morðingjanum Bein útsending: Minningarathöfn Charlie Kirk Kanada, Bretland og Ástralía viðurkenna Palestínu Trump og Vance ávarpa minningarathöfn Charlie Kirk Búast við því að Bretar viðurkenni sjálfstæði Palestínu í dag Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Grænlendingar ná ekki að klára hvalveiðikvóta Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Trump og Selenskí funda á ný Miklar tafir á fjölda flugvalla vegna netárásar Cruz sagði hótanir Carr líkt og frá mafíósa í Goodfellas Eistar óska eftir samráði NATO eftir að Rússar rufu lofthelgi þeirra Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Rússneskum herþotum flogið inn í lofthelgi Eistlands Sagður neita að samþykkja hergagnasendingu til Taívan Norska krónprinsessan í veikindaleyfi Reiðir Könum sem skreyta sig með fána Kanada Rússar áfrýja niðurstöðu um hrap malasísku farþegaþotunnar Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Banna kennslubækur eftir konur í háskólum landsins Bandaríkin beittu neitunarvaldinu gegn kröfu um vopnahlé Segir Pútín hafa valdið sér „miklum vonbrigðum“ Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Eltihrellir sat fyrir lögregluþjónum og skaut þrjá til bana Sjá meira