Mikil reiði vegna bágrar aðstoðar 2. september 2005 00:01
Árangur björgunaraðgerða vegna fellibylsins er óviðunandi, sagði Bush Bandaríkjaforseti í dag áður en hann hélt suður á bóginn til að skoða hamfarasvæðin með eigin augum. Forsetinn lofaði allri mögulegri aðstoð en fyrir marga er það einfaldlega orðið of seint. Bush talaði stuttlega við fjölmiðla áður en hann lagði af stað og virtist stjórnmálaskýrendum hann loks hafa áttað sig á hversu alvarlegt ástandið væri. Gítarinn var víðs fjarri og hann talaði í alvarlegum tón. Hann sagði hjálpargögn nú berast til fórnarlambanna, milljónir lítra af vatni og miljónir tonna af matvælum. Þá væri verið bjarga fólki úr Superdome-höllinni. Forsetinn þakkaði þeim sem hafa unnið fórnfúst björgunarstarf síðustu daga en viðurkenndi að árangurinn væri ekki viðunandi. Hann sagðist enn fremur hlakka til að ræða við fólkið á staðnum þegar hann kæmi á hamfarasvæðin. Hann hygðist fullvissa íbúa á svæðinu og landsmenn alla um að yfirvöld myndu útvega þá fjármuni sem þörf væri á til að koma á röð og reglu, flytja hjálpargögn til fólksins sem hefði orðið verst úti og að hrinda af stað langtímaáætlun. Bush byrjaði á að stoppa í Mobile í Alabama sem er rústir einar eftir fellibylinn. Þaðan hélt hann til Biloxi í Mississippi en flaug aðeins yfir New Orleans. Ray Nagin, borgarstjóri New Orleans, hefur gagnrýnt stjórnvöld harðlega og spurt hvernig standi á því að daginn eftir flóðbylgjuna miklu við Indlandshaf hafi verið komin Herkúlesarvél frá bandaríska hernum hinum megin á hnöttinn að dreifa vatnsflöskum en ekkert gerist í marga daga eftir að verstu náttúruhamfarir í áratugi verði í Bandaríkjunum sjálfum. Nagin sagði að svör ráðamanna um að hjálpargögn væru á leiðinni væru þvættingur. Hann spurði hvar nautakjötið væri. Ekkert slíkt væri í borginni og engin skepna í Suðaustur-Louisiana. Þá sæi hann hvergi þau skip sem ættu að vera á leiðinni með hjálpargögn. Nagin sagði stjórnvöld í Washington ekki hafa hugmynd um hvað væri að gerast í Suðurríkjunum. Stjórnvöld hefðu flogið með fréttamenn og alls kyns drasl yfir svæðið tveimur dögum eftir hamfarirnar. Hann væri orðinn verulega reiður vegna ástandsins og lítilla viðbragða alríkisstjórnarinnar. Reiðin hefur einnig magnast hjá íbúunum síðustu daga, þar sem þeim finnst þeir hafa gleymst. Alríkisstjórnin hefur lofað hundruðum milljarða króna í björgunar- og uppbyggingarstarf og þrátt fyrir að heyrst hafi gagnrýni á að ætlunin sé að byggja borgina aftur upp á sama stað, að mestu tvo metra undir sjávarmáli, þá eru fáir sem efast um að af því verði. New Orleans er efnahagslega afar mikilvæg fyrir Bandaríkin þar sem gríðarlegt magn bæði landbúnaðarvara og olíu fer í gegnum hafnarsvæðið, upp og niður Mississippi-fljót. Öldungadeildarþingmaður Louisiana sagði í dag að líklega væru meira en tíu þúsund manns látnir í ríkinu. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sendi í dag fyrir hönd ríkisstjórnarinnar George Bush, forseta Bandaríkjanna, samúðarskeyti vegna hamfaranna og segir þar að íslenska þjóðin sé harmi slegin vegna þess fjölda sem lét lífið og þess tjóns sem varð.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Sjá meira