Erlent

Nauðstöddum berst loks aðstoð

Fjórum dögum eftir að fellibylurinn Katrín gekk yfir Louisiana barst nauðstöddum á hamfarasvæðunum loks aðstoð í gær, þegar þúsundir liðsmanna bandaríska þjóðvarðliðsins, hlaðnir vopnum, búnaði og vistum, komust þangað. Aðalverkefni hermannanna var að koma á lögum og reglu, auk þess að aðstoða nauðstadda. "Riddaraliðið er komið og það mun halda áfram að koma," hefur AP eftir einum hershöfðingjanum. Herbílalestin óð í gegnum aurugt flóðvatnið á götum New Orleans og kom að ráðstefnumiðstöðinni þar sem 15.000-20.000 borgarbúar höfðust við, einangraðir, matarlitlir og örvæntingarfullir. Margir voru svo reiðir yfir ringulreiðinni og langri biðinni eftir aðstoð að andrúmsloftið var lævi blandið. Opnir pallar herflutningabílanna voru hlaðnir hjálpargögnum. Hermenn með alvæpni sátu aftan á pöllunum. Margir tugir hópflutningabíla fylgdu í kjölfar herbílalestarinnar og stefndu að Superdome-íþróttahöllinni, en fyrir utan hana biðu þúsundir flóðflóttafólks sem afbar ekki lengur fnykinn, hitann og skítinn inni í höllinni. Gríðarleg óánægja kraumaði meðal fólksins sem hafði orðið innlyksa þarna. Borgarstjóri New Orleans og aðrir héldu því fram að alríkisyfirvöld hefðu spillt fyrir björgunarstarfinu og valdið því þar með að fjöldi fólks á flótta undan hamförunum veslaðist upp á yfirgefnum götum, matar-, vatns- og lyfjalaust. Á fimmtudag lágu lík í skítnum kringum ráðstefnumiðstöðina og margir sem leitað höfðu skjóls þar kvörtuðu sáran yfir því að yfirvöld hefðu látið þá afskiptalausa. Eldar kviknuðu og slagsmál brutust út þegar fólk reyndi sitt ýtrasta til að komast um borð í rútur sem áttu að flytja það í aðra íþróttahöll í Houston í Texas. Skipulagið var þó ekki betra en svo að margir þeirra sem þó fengu far til Houston Astrodome-leikvangsins var vísað frá þar sem þá þegar hefðu of margir verið komnir þangað inn. "Fólkið í borginni er á ystu nöf," sagði borgarstjórinn Ray Nagin í yfirlýsingu sem send var út á CNN-sjónvarpsstöðinni. "Tíminn er runninn út. Lifum við aðra nótt af? Á hvern getum við treyst? Það veit Guð einn," sagði hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×