Erlent

ESB sendir olíu til Bandaríkjanna

Evrópusambandið mun senda hluta af olíuneyðarbirgðum sínum til Bandaríkjanna til þess að hjálpa þeim að takast á við erfitt ástand í orkumálum eftir yfirreið fellibylsins Katrínar. Stór hluti olíuborpalla og olíuhreinsistöðva í og við Mexíkóflóa er óstarfhæfur eftir hamfarirnar og hefur framleiðsla á olíu dregist saman um milljón tunnur á dag af þeim sökum. Þetta hefur leitt til þess að olíuverð hefur hækkað mjög og vilja Evrópusambandsríkin m.a. draga úr hækkunum með þessum aðgerðum ásamt því að verða við beiðni Bandaríkjanna um aðstoð. Spánverjar og Þjóðverjar segjast þegar tilbúnir að senda olíu vestur um haf en Bush Bandaríkjaforseti hefur hvatt landa sína til þess að fara sparlega með eldsneyti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×