Erlent

Sprengjutilræði í Dagestan

Þrír létust og ellefu særðust í sprengingu nærri hermannabröggum í Dagestan í Rússlandi í dag. Í fyrstu var talið að herflutningabíll hefði sprungið en Reuters-fréttastofan hefur eftir vitnum að engin ummerki hafi verið um farartæki á vettvangi. Þá segja hermenn að sprengjan hafi sprungið við venjubundna leit að sprengjum á götunni þar sem braggarnir standa. Ekki er ljóst hverjir stóðu á bak við tilræðið í Dagestan-héraði, en það á landamæri að Tsjetsjeníu og hafa átök þar breiðst út til nærliggjandi héraða, s.s. Dagestans og Ingúsetíu. Sprengingin kemur á viðkvæmum tíma fyrir Rússa því nú er þess minnst að ár er liðið frá umsátrinu um barnaskólann í Besland þar sem 331 lést eftir að rússneskar hersveitir reyndu að frelsa gísla úr höndum tsjetsjenskra uppreisnarmanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×