Tyrkland hafi uppfyllt kröfur ESB 2. september 2005 00:01 „
Tyrkland hefur komið til móts við allar kröfur Evrópusambandsins, nú verður ekki meira að gert.“ Þetta sagði Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands í dag, en samningaviðræður um inngöngu Tyrklands í Evrópusambandið eiga að hefjast 3. október. Ekki eru allir meðlimir sambandsins sammála honum. Tyrkir hafa lengi stefnt að því að verða fullgildir meðlimir Evrópusambandsins. Leiðtogar þess hafa krafist ýmissa breytinga í tyrknesku stjórnarfari svo það megi verða mögulegt, svo sem afnáms dauðarefsingar og mikilla umbóta í mannréttindamálum. Erdogan segir öllum kröfum hafa verið mætt og nú sé kominn tími til að fara að vinna að alvöru samningi. Frakkar hafa haft efasemdir um ágæti þess að Tyrkir gangi í sambandið og nefna til dæmis að það sé fáránlegt að þjóð sem sé meðlimur í sambandinu viðurkenni ekki aðra þjóð sem þar er fyrir. Tyrkir viðurkenna ekki Kýpur vegna langvinnra deilna eftir stríð Grikkja og Tyrkja þar fyrir áratugum síðan og tvískiptingu landsins í grískan og tyrkneskan hluta. Angela Merkel, kanslaraefni kristilegra demókrata í Þýskalandi, hefur einnig reitt Erdogan til reiði með því að leggja margsinnis til að Evrópusambandið geri tvíhliða samning við Tyrki, en veiti þeim ekki fulla aðild. Allar líkur eru á að Merkel verði kanslari Þýskalands eftir kosningarnar þar í landi 18. september. En þrátt fyrir greinilega tregðu þessara tveggja stóru ESB-ríkja hafa stjórnvöld í hvorugu þeirra sagt að þau muni beita neitunarvaldi til að hindra það að samningarviðræður hefjist í október.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Erlent Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Innlent Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Þungt hugsi og í áfalli Innlent Samþykktu Trump-samninginn einróma Erlent Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Innlent „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Innlent Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Innlent Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Erlent Miklum meirihluta finnst auglýsingar SFS slæmar Innlent Fleiri fréttir Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Sjá meira