Algjör rýming yfirvofandi 1. september 2005 00:01
New Orleans mun líkjast draugaborg innan nokkurra daga ef björgunarstarf gengur að óskum, því öllum sem eftir eru í borginni hefur verið skipað burt. Borgarstjórinn, Ray Nagin, vonast til að borgin verði orðin mannlaus innan tveggja daga. Nagin sagði í gærkvöldi að minnst nokkur hundruð manns hefðu farist í New Orleans og líklega nokkur Þúsund. Flestir íbúanna myndu líklega ekki geta snúið til síns heima fyrr en eftir fjóra mánuði. Þá sagði hann að líklega myndu líða nokkrar vikur þar til hægt yrði að byrja að dæla skítugu vatninu burt úr borginni og þá fyrst kæmi að fullu í ljós hve miklar skemmdirnar væru. Algjör glundroði ríkir hjá þeim hundrað þúsund sem enn eru í borginni. Aðeins fjórðungur þeirra er í Súperdóme höllinni, sem átti að hýsa alla sem ekki kæmust burt. Mörg hundruð manns hafast við á húsþökum og björgunarsveitarmenn keppast við að bjarga þeim sem eru lifandi og enginn tími gefst til að flytja burt lík á meðan. Til að bæta gráu ofan á svart hafa hundruð óprúttinna náunga farið ránshendi um borgina og byssuhvellir heyrast víða. Fimmtán hundruð lögreglumenn hafa hætt björgunaraæðgerðum, til að fást við ræningjana. Bush Bandaríkjaforseti sagði í morgun að ræningjum og öðrum sem nýttu sér neyðarástandið yrði refsað harkalega og þeim yrði ekki sýnd nokkur einasta vægð. Öll Strandlengjan í suður Bandaríkjunum er rústir einar og það mun taka fjölda ára, ef ekki áratugi, að byggja hana upp að nýju. Ástandið í Missisippi er svo slæmt að margir telja að stór hluti strandlengjunnar verði aldrei íbúðarhæfur aftur. Skip og bátar liggja á víð og dreif, hótel og spilavíti hafa hrunið og ferðamannaiðnaðurinn, sem hefur verið aðaltekjulindin, verður í lamasessi um lengri tíma. Nú hefur verið staðfest að minnst hundrað áttatíun og fimm manns hafi látist bara þar og líklega mun fleiri þegar öll kurl koma til grafar. Jan Egeland, yfirmaður neyðarhjálpar Sameinuðu Þjóðanna, sagði í gær að fjárhagslegt tjón vegna hamfaranna í Bandaríkjunum væri meira en eftir allar hamfarir í heminum í fjöldamörg ár, þar með taldar hamfarirnar í Asíu á annan í jólum. Bush sagði í ávarpi í gærkvöldi að hamfarirnar væru einhverjar þær verstu í sögu Bandaríkjanna og að endurbygging myndi taka mörg ár. Hann hefur lofað því að þingið muni sjá um að fjármagna björgunarstarfið og uppbyggingu svæðisins.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Erlent Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Innlent Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Þungt hugsi og í áfalli Innlent Samþykktu Trump-samninginn einróma Erlent Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Innlent „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Innlent Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Innlent Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Erlent Miklum meirihluta finnst auglýsingar SFS slæmar Innlent Fleiri fréttir Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Sjá meira