Sjíar vilja sambandsríki 12. ágúst 2005 00:01
Íraskir sjíar virðast óðum að komast á þá skoðun að skipta beri landinu upp í sambandsríki og bætast þar með í hóp Kúrda, sem eru mjög áhugasamir um slíka stjórnskipan. Súnníar eru þessu aftur á móti mjög mótfallnir. Fresturinn sem Írakar tóku sér til að semja texta framtíðarstjórnarskrár sinnar rennur út á mánudaginn en landsmenn greiða svo atkvæði um plaggið í október. Fulltrúum sjía, súnnía og Kúrda hefur hins vegar gengið afleitlega að koma sér saman um innihald þess og er vandséð að þeim takist að ljúka vinnunni áður en fresturinn rennur út. Það er ekki síst spurningin um hvort Írak skuli verða sameinað og miðstýrt ríki eða lauslegt sambandsríki sem hefur verið ásteytingarsteinn. Kúrdar hafa barist fyrir síðarnefndu útfærslunni en súnníar hafa með oddi og egg varið núverandi fyrirkomulag. Í gær lýsti Abdul-Aziz al-Hakim, einn áhrifamesti stjórnmálamaður heittrúaðra sjía, þeirri skoðun sinni á fundi í hinni helgu borg Najaf að stefna bæri að því að suðurhluti landsins fengi sjálfstjórn í sem flestum málaflokkum svo að pólitísku jafnvægi verði náð í Írak. Ummæli al-Hakim eru merkileg þar sem heittrúaðir sjíar hafa hingað til heldur hallast að miðstýrðri stjórnskipan. Dagblaðið New York Times hermir að fyrir fundinn hafi al-Hakim rætt við Ali Sistani erkiklerk, en hann er af mörgum talinn áhrifamesti maður Íraks. Sé Sistani sammála hugmyndum um sambandsríki er mjög líklegt að stjórnarskráin muni kveða á um slíkt fyrirkomulag. Súnníar hafa þegar harðlega gagnrýnt þetta útspil al-Hakim og segja það draga úr líkum á að stjórnarskrárnefndin nái samkomulagi fyrir mánudaginn. Þorri íbúa Suður-Íraks er sjíar, Kúrdar byggja norðrið en súnníar eru fjölmennir í miðhluta landsins. Skipting landsins í sjálfsstjórnarhéruð myndi taka mið af því. 80-90 prósent af olíulindum Íraks og eina höfn þess eru í suðurhlutanum og því er ekki að undra að margir sjíanna hugsi sér gott til glóðarinnar á sama tíma og súnnía hrylli við.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Fleiri fréttir Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Sjá meira