Enn eitt metið slegið 11. ágúst 2005 00:01
Ekkert lát er á hækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu en í gær fór verðið á fatinu í fyrsta sinn yfir 65 dali. Fellibyljir í suðurhöfum og kjarnorkuáætlun Írana eru á meðal orsaka hækkananna, að ógleymdri hryðjuverkaógninni. Síðastliðin ár hefur verð á hráolíu í heiminum sexfaldast. Árið 1999 kostaði fatið tíu dali en í fyrra fór það upp í 40 dali og þótti þá mörgum nóg um. Í gær var svo verðið komið upp í 65 dali. Í fyrradag var greint frá því að birgðaskár í Bandaríkjunum, mesta olíuneytanda heims, sýndu að olíubirgðir hafa dregist talsvert saman en það er afleiðing af lokun olíuhreinsistöðva í landinu. Þær fregnir urðu ekki til að auka fólki bjartsýni um að toppnum væri náð. Hins vegar kynnti Alþjóðaorkumálastofnunin IEA júlískýrslu sína í gær og þar kom fram að olíunotkun það sem af er ári væri 150.000 fötum minni en búist hafði verið við. Sömuleiðis virðist vera að draga úr olíunotkun Kínverja en þriðjungur hráolíuframleiðslu heimsins er fluttur þangað. Það eru því ekki eingöngu slæmar fréttir af þessum vettvangi. Margvíslegar skýringar eru á þessum miklu hækkunum. Lokanir olíuhreinsistöðva í Venesúela og Bandaríkjunum eru ein þeirra og fellibyljir í sunnanverðu Atlantshafi. Þá stendur ferðamannatíminn sem hæst og því er spurn eftir þotueldsneyti afar mikil. Í Mið-Austurlöndum varð dauði Fahds, konungs Sádi-Arabíu, til að hækka verðið á fatinu og óróinn sem hefur skapast vegna kjarnorkuáætlunar Írana hefur ekki orðið til að bæta úr skák. Þá er ótti um hryðjuverkaárásir, bæði í olíuframleiðsluríkjunum sem og annars staðar, stór þáttur í verðhækkunum. Flestir spá því að olíuverð muni haldast hátt að minnsta kosti eitthvað fram á næsta ár, fyrirtækjum og almenningi til sárrar gremju. Ef olíuverð mánaðanna eftir klerkabyltinguna í Íran 1979 er hins vegar framreiknað til dagsins í dag kemur í ljós að það var um níutíu dalir fatið þannig að ef til vill mega olíunotendur prísa sig sæla þrátt fyrir allt.
Erlent Fréttir Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira