Aðeins kröfur en ekki hótanir 11. ágúst 2005 00:01 MYND/AP
Evrópusambandið krefst þess að Íranar hætti starfsemi í kjarnorkuverum landsins en eitt þeirra var endurræst í gær. Engu er hins vegar hótað verði ekki brugðist við kröfunum. Drög að ályktun hafa verið kynnt hjá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni þar sem þess er krafist að Íranar loki aftur kjarnorkuverinu í Isfahan sem var endurræst í gær. Enn fremur er þess krafist að fulltrúar stofnunarinnar gangi úr skugga um að Íranar hlíti tilmælum stofnunarinnar. Það er Evrópusamabandið með Breta, Frakka og Þjóðverja í broddi fylkingar sem vill að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin þrýsti á Írana er ljóst er að Bandaríkjamenn eru á sömu línu. Í ljósi yfirlýsinga í aðdraganda atburða gærdagsins virðist yfirlýsingin hins vegar hálfbitlaus. Því er til dæmis ekki hótað að málinu verði vísað til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem gæti sett viðskiptabann á Íran. Bregðist Íranar ekki við tilmælum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar hafa höfundar ályktunartillögunnar látið að því liggja að málinu verði vísað til Öryggisráðsins í september. Íranar hafa í raun þegar svarað umkvörtunum stofnunarinnar og segja það út í hött að loka kjarnorkuverinu aftur. Í raun hafi árangurslausar viðræður við Evrópusambandið undanfarna mánuði sýnt það betur en nokkuð annað að það hafi ekki skilað Írönum neinu að loka verinu til að byrja með.
Erlent Fréttir Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Fleiri fréttir Rutte segir Evrópu reiða sig of mikið á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Sjá meira