Hættir rekstri einangrunarstöðvar 9. ágúst 2005 00:01
Ríkið mun ekki reka einangrunarstöð í Hrísey eftir að ný stöð hefur tekið til starfa, að sögn Hákonar Sigurgrímssonar skrifstofustjóra í landbúnaðarráðuneytinu. Hann segir stöðinni í Hrísey ekki verða lokað fyrirvaralaust, heldur verði um aðlögunartíma að ræða. Í Höfnum er að rísa ný einangrunarstöð fyrir gæludýr. Hún á að raka til starfa 1. desember, að sögn Kristínar Jóhannesdóttur eiganda hennar. "Mér eru þegar farnar að berast umsóknir þótt nokkuð sé í að stöðin opni og ég hafi ekkert auglýst enn ," segir Kristín. Stöðin verður tvískipt líkt og í Hrísey. Dýr verða tekin inn í tveimur hópum í hverjum mánuði. Í öðrum hópnum er pláss fyrir 12 hunda og fimm ketti og í hinu fyrir 14 hunda og fjóra ketti. Gert er ráð fyrir að hvert dýr verði á stöðinni í 28 daga. Kostnaðurinn er á bilinu 150 - 160 þúsund krónur. Verðið fer eftir þyngd hvers dýrs. Í því er innifalinn kostnaður við sýnatökur, dýralæknaþjónustu og annað sem skilyrt er. Starfsmenn verða þrír talsins auk dýralæknis sem starfa mun við stöðina. "Mér heyrist að margir dýrainnflytjendur fagni þessari nýju stöð," segir Kristín. "Staðsetningin er frábær, stöðin verður fullkomin í alla staði og farið verður nákvæmlega eftir reglugerðinni. Sóttvörnin verður eins sterk og kostur er. Dýrunum verður ekið inn í stöðina og þau ekki tekin út úr búrinu fyrr en búið er að loka hurð." Kristín mun eiga og reka stöðina ein, án allra styrkja. Hún hannaði hana sjálf og segir sóttvarnaröryggið, góða umönnun og aðbúnað í fyrirrúmi. Spurð um kostnað segir hún að hann hlaupi á tugum milljóna og fjármögnunin hafi verið erfið til að byrja með. Hákon segir sína skoðun að ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir tvær einangrunarstöðvar hér á landi. Ríkið muni líklega selja húsnæðið í Hrísey. Enn sem komið væri hafi enginn sýnt áhuga á að eignast það og reka eigin stöð í því. Árið 2004 voru fluttir inn 122 hundar og 27 kettir til landsins. Á milli ára 2003 og 2004 fjölgaði umsóknum um innflutningsleyfi fyrir gæludýr um rúmlega 27 prósent.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Sjá meira