Fyrri gröf Egils fundin? 8. ágúst 2005 00:01
Jessie Byock, prófessor við Kaliforníuháskóla í Los Angeles, leggur áherslu á að vinna þeirra í Mosfellsdalnum beinist ekki að því að finna gröf Egils Skallagrímssonar. Uppgröfturinn í Mosfellsdal hefur staðið í mörg ár og kirkjan á Hrísbrú er sjötti staðurinn sem þeir grafa á. Tilgangurinn er að kortleggja byggðina í Mosfellsdal eins og hún var á víkingatímanum og hvernig lífi fólkið lifði. Jessie segir brosandi að ef þeir í leiðinni finni gröf Egils Skallagrímssonar, verði hann þó afskaplega hamingjusamur, og það sé jú vitað að Egill hafi verið jarðsettur á þessum slóðum. Fornleifafræðingarnir eru nú að grafa upp stórmerka kirkju á Hrísbrú sem er meðal annars sérstök fyrir það að timbrið í henni var mjög heillegt. Og undir altarinu fundu þeir gröf sem lík og kista hafði verið fjarlægt úr. Það er um Egil vitað að eftir að Ásgerður kona hans dó undi hann sér ekki á Borg og fluttist til Þórdísar fósturdóttur sinnar, að Mosfelli. Þar lést hann árið 990, áttræður að aldri og farinn að heilsu. Hann var jarðaður, en líkið var seinna flutt og grafið einhversstaðar rétt hjá Mosfelli. Það er því fræðilegur möguleiki að tóma gröfin undir kirkjualtarinu á Hrísbrú sé fyrri legstaður hans. Jessie Byock segir að þau séu búin að fá góða mynd af byggðinni í Mosfellsdal, til forna. Þeir skilja heilsufarið og hverskonar vinnnu fólkið stundaði og þeir sjái af uppgreftrinum heilmikið um lífið á þjóðveldistímanum. Tuttugu og tvær beinagrindur hafa fundist og þar má sjá vísbendingar um hversu ofbeldisfullt þetta tímabil var. Þeir hafa meðal annars fundið höfuðkúpu hverrar eigandi hafði verið drepinn með öxi. Einnig hefur komið í ljós að fólkið þjáðist af ýmsum sjúkdómum, svosem krabbameini og berklum. Uppgröfturinn heldur áfram og hver veit, kannski gemur gamli berserkurinn organdi út úr einhvejum hólnum. Tuttugu og tvær beinagrindur hafa fundist og þar má sjá vísbendingar um hversu ofbeldisfullt þetta tímabil var. Þeir hafa meðal annars fundið höfuðkúpu hverrar eigandi hafði verið drepinn með öxi. Einnig hefur komið í ljós að fólkið þjáðist af ýmsum sjúkdómum, svosem krabbameini og berklum. Uppgröfturinn heldur áfram og hver veit, kannski gemur gamli berserkurinn organdi út úr einhvejum hólnum.
Fréttir Innlent Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Fleiri fréttir Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sjá meira