Geimganga Discovery-áhafnar hafin 30. júlí 2005 00:01
Geimfarar um borð í Discovery eru nú í geimgöngu og búa sig undir að gera við skutluna. Hún varð fyrir skemmdum í flugtaki í vikunni, svipuðum þeim sem skutlan Columbia varð fyrir 2003. Sérfræðingar NASA segja allt í himnalagi. Tveir geimfarar um borð í geimskutlunni Discovery eru sem stendur í geimgöngu, 358 kílómetrum yfir Suðaustur-Asíu. Þeir eiga á næstu sex klukkustundum að kanna hvort þeir geti gert við einangrunarflísar sem skemmdust í flugtaki sem og hluta vængjar sem laskaðist. Viðgerðir af þessu tagi hafa aldrei verið gerðar úti í geimnum og því eiga geimfararnir að æfa sig fyrst. Þessir hlutar skutlunnar eiga að vernda hana þegar hún kemur aftur inn í lofthjúp jarðar. Talsmenn geimferðarstofnunar Bandaríkjanna, NASA, segja engar vísbendingar um að ferjunni sé hætta búin þrátt fyrir skemmdirnar en halda því opnu að reynt verði að gera við skutluna á sporbraut. Skemmst er að minnast þess þegar geimskutlan Columbia sundraðist þegar hún kom inn í lofthjúpinn. Skemmdir höfðu einnig orðið á henni við flugtak og komst logandi gas inn í skutluna fyrir vikið. Öll áhöfnin fórst. Ferð Discovery er sú fyrsta frá því slysi og NASA eyddi bæði miklum tíma og yfir milljarði dollara í að tryggja að samskonar atvik endurtæki sig ekki. Það er því mikil áfall að flísar hafi losnað af skutlunni í flugtaki. Geimskutluflotinn er í flugbanni þangað til tekist hefur að tryggja að svona vandamál endurtaki sig ekki. Geimfararnir sem eru í geimgöngunni eiga einnig að huga að Alþjóðlegu geimstöðinni og gera við bilaða hluta hennar. Alls er stefnt að þremur geimgöngum áður en Discovery á að snúa aftur til jarðar, 7. ágúst næstkomandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira