Erlent

Kennir Ísraelum um

Leiðtogi Palestínumanna kennir Ísraelum um að allt sé á leiðinni á versta veg á Gaza svæðinu. Mahmoud Abbas segist ætla að gera allt til að koma í veg fyrir árásir palestínskra uppreisnarmanna á byggðir Ísraela á Gaza svæðinu á næstunni. Það sé hins vegar Ísraelsmönnum að kenna að allt sé farið í bál og brand á nýjan leik og allar frekari árásir af þeirra hálfu gætu leitt til aðgerða frá herskáum Palestínumönnum. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, aflétti um helgina öllum takmörkunum á aðgerðum ísraelska hersins og með því lauk formlega fimm mánaða vopnahléi og allar tilraunir til sátta virðast á leiðinni út í veður og vind.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×