Erlent

220 látnir í flóðum á Indlandi

Alls hafa 220 manns látist og um 150 þúsund heimili eyðilagst í flóðum í norðausturhluta Indlands frá því regntímabilið hófst í vor. Um fjörutíu og fimm þúsund manns hafa verið fluttir í björgunarbúðir og búa nú þúsundir manna í opinberum byggingum, aðallega í skólum og á lestarstöðvum. Flutningur á matvælum og lyfjum hefur gengið brösulega þar sem brýr og vegir hafa skolast burt. Skortur er nú orðinn á þessum vörum og er rafmagnslaust víða á svæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×