Erlent

Farþegaflugvél fórst

Ekki er vitað hversu margir fórust er farþegaflugvél af gerðinni Anatonov fórst skömmu eftir flugtak í gærkvöld í Afríkuríkinu Miðbaugs-Gíneu. Þá er ekki heldur vitað hversu margir voru um borð en þó svo að á farþegaskránni hafi verið 35 og tíu manna áhöfn er vel hugsanlegt að þeir hafi verið fleiri því áhöfnum flugvéla er oft mútað til að taka aukafarþega. Samkvæmt einum flugvallarstarfsmanni er hugsanlega að allt að 80 manns hafi verið um borð í vélinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×