Erlent

Fjölmenni hjá Arroyo

Stuðningsmenn Gloriu Arroyo Filippseyjaforseta héldu fjöldafund henni til stuðnings í Maníla, höfuðborg landsins, í gær. Lögregla lýsti því yfir að 250.000 manns hefðu mætt til fundarins en AP-fréttastofan telur að tæpast hafi fleiri en 100.000 safnast saman. Engu að síður var fundurinn í gær mun fjölmennari en samkoma andstæðinga forsetans á miðvikudaginn. Arroyo hefur verið ásökuð um að hafa svindlað í forsetakosningunum á síðasta ári. Skoðanakannanir sýna að meirihluti þjóðarinnar telur að forsetinn eigi að segja af sér og þorri hennar vill að þingið ákæri Arroyo fyrir embættisafglöp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×