Erlent

Svindlaði út nautakjöti

Verslunarstjóri í matvöruverslun í Búdapest sætir nú lögreglurannsókn grunaður um svindl. Verslunarstjórinn fyrirskipaði stórfelldar verðlækkanir á nautahakki, verðið var lækkað úr 900 íslenskum krónum á kílóið niður í 290 krónur. Verslunarstjórinn bar verðlækkunina ekki undir yfirmann sinn. Skömmu síðar mætti svo eiginkona verslunarstjórans í búðina og keypti yfir 20 kíló af hakkinu. Kassastarfsmanninum sem afgreiddi konuna fannst málið heldur undarlegt og gerði lögreglu viðvart sem rannsakar nú málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×