Erlent

Ódæðin halda áfram

Stjórnvöld í Keníu hafa sent 2.000 hermenn til norðurhluta landsins til að hafa upp á þeim sem frömdu fjöldamorð í bænum Turbi á þriðjudaginn. 76 biðu bana, þar af 22 börn. Deilur ættbálkanna Borana og Gabra eru undirrót voðaverkanna en menn úr fyrrnefnda ættbálknum eru sagðir bera á þeim ábyrgð. Í hefndarskyni réðust nokkrir Gabra-menn á bíl Borana-manna í gær, rifu farþegana út og hjuggu þá í spað með sveðjum. 6.000 manns hafa flúið frá Turbi til nágrannaborgarinnar Marsabit.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×