Erlent

Kerfisbundnar misþyrmingar

Ný rannsókn á vegum Bandaríkjahers leiðir í ljós að hinar illræmdu yfirheyrsluaðferðir sem notaðar voru í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak voru ekki einangrað tilfelli. Skýrsla rannsóknarnefndarinnar hefur verið kynnt nefnd öldungardeildarþingmanna en dagblaðið Washington Post greindi frá niðurstöðum hennar í gær. Þar kemur fram að starfsmenn Guantanamo-fangabúðanna þvinguðu fanga sem tengist hryðjuverkaárásunum 11. september 2001 til að klæðast kvennærfötum, ógnuðu honum með hundum og neyddu hann til að skríða á gólfinu með ól bundna um hálsinn. Svipaðar aðferðir voru síðar notaðar í Abu Ghraib-fangelsinu. Stjórnvöld í Washington staðhæfðu á sínum tíma að misnotkunin í Abu Ghraib hefði verið uppátæki þeirra hermanna sem í hlut áttu en ekki verið að skipun yfirvalda. Niðurstöður rannsóknarnefndarinnar þykja hins vegar sýna með óyggjandi hætti að slíkum aðferðum hafi verið beitt á kerfisbundinn hátt. Sérstaka athygli vekur að Donald Rumsfeld landvarnaráðherra er sagður hafa lagt blessun sína yfir þessar yfirheyrsluaðferðir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×