Áhyggjur af framtíð kjarasamninga 12. júlí 2005 00:01
Kerfisbreytingin vegna dísilolíunnar veldur hækkun á vísitölu neysluverðs. Alþýðusamband Íslands segir hækkun vísitölunnar ekki koma á óvart og þar á bæ hafa menn áhyggjur af framtíð kjarasamninga. Um síðustu mánaðamót var þungaskattur af dísilolíu afnuminn og olíugjald lagt á í staðinn. Samkvæmt útreikningum Hagstofunnar hækkaði útsöluverð olíunnar um tæp 106%, sem leiddi til 0,61% hækkunar á vísitölu neysluverðs. Með því að draga þungaskattinn frá, en hann var inni í grunni vísitölunnar, lækkar vísitalan um 0,48% þannig að heildaráhrifin af hækkun olíuverðs- og kerfisbreytingunni eru því 0,13 % hækkun vísitölu neysluverðs. Hagstofan athugaði, að beiðni fréttastofunnar, sérstaklega hvað kerfisbreytingin ein og sér leiddi af sér og var niðurstaðan sú að hún hækkaði vísitölu neysluverðs um 0,06%. Að sögn Stefáns Úlfarssonar, hagfræðings hjá ASÍ, hafa menn þar á bæ ekki skoðað þennan þátt vísitölunnar sérstaklega en hafa hins vegar þungar áhyggjur af hækkun vísitölunnar. Í maí hafi verið gerð kerfisbreyting á útreikningum hennar, sem hafi leitt til lækkunar, en hjá ASÍ hafi menn bent á að það væri einangruð lækkun og það sé að koma á daginn. Verðbólguþrýstingur sé mikill í vísitölunni og menn hafi þungar áhyggjur af framtíð kjarasamninga, en þeir koma til endurskoðunar í nóvember.
Fréttir Innlent Mest lesið Segja slúbberta hjá hinu opinbera kosta ríkið 30 til 50 milljarða árlega Innlent Skilti Vegagerðarinnar morandi í villum: „Er ekkert gæðaeftirlit hjá ykkur?“ Innlent Ráðist með hníf að ungmenni í Hafnarfirði Innlent Tveir ísraelskir sendiráðsstarfmenn skotnir til bana í Washington Erlent Skutu mann í röngu húsi en brutu ekki af sér Erlent Grunaður árásarmaður í Úlfarsárdal handtekinn Innlent Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Erlent Nota lygapróf til að leita lekamanna og refsa þeim Erlent Leigubílstjóri fór í svaðilför á Teslunni upp í Þórsmörk og sneri heill heim Innlent Sat fyrir forseta Suður-Afríku með ásökunum um þjóðarmorð á hvítum Erlent Fleiri fréttir Ráðist með hníf að ungmenni í Hafnarfirði Segja slúbberta hjá hinu opinbera kosta ríkið 30 til 50 milljarða árlega Skilti Vegagerðarinnar morandi í villum: „Er ekkert gæðaeftirlit hjá ykkur?“ EES-ríkin þrjú efla samstarf við ESB á sviði öryggismála Öskrandi og ber að ofan við grunnskóla Opni Ísraelar ekki fyrir mannúðaraðstoð „þá verða að vera þvinganir“ Neyðaraðstoð í gíslingu, óvænt ákvörðun og ærandi spenna Leigubílstjóri fór í svaðilför á Teslunni upp í Þórsmörk og sneri heill heim Grunaður árásarmaður í Úlfarsárdal handtekinn Slæmur frágangur akkerisins olli slysinu Níðingarnir treysta á skömmina í kynlífskúgunarmálum Ber fyrir sig minnisleysi á verknaðarstundu Gæsluvarðhaldsfangar dúsa í einangrun vegna plássleysis Þau sóttu um þrjú embætti skólameistara á Norðurlandi Haraldur Jóhannsson er látinn Ráðin í starf verkefnastjóra í atvinnuvegaráðuneytinu Fyrsta mastrið í Suðurnesjalínu 2 risið Hæstiréttur gefur grænt ljós á búvörulögin Dvöl á Hrauninu fram undan eftir kókaínsmygl Hefja átak í HPV-bólusetningu í vetur Seðlabankinn heldur áfram að lækka vexti og mótmæli við utanríkisráðuneytið Hjalti Snær sá sem fannst látinn Samhjálp í kapphlaupi við tímann Gefa sér þrjá mánuði til að leggja drög að Coda-stöð á Bakka Þrettán skemmtiferðaskip og Ísland uppselt Mótmæla við utanríkisráðuneytið Strandveiðibátur strandaði á hólma á Reykjanesi SÍS tekur undir kröfu Borgarbyggðar um kostnað vegna flóttamanna Bað lögreglustjóra að „veita framvegis réttar upplýsingar“ Langjökull eigi ekki ýkja mörg ár eftir Sjá meira