Erlent

Átta handteknir

Lögreglan í Afganistan hefur handtekið átta manns sem eru grunuð um að eiga aðild að mannráni á ítalska hjálparstarfsmanninum Clementinu Cantoni. Hún var látin laus eftir að hafa verið í haldi mannræningjanna í þrjár vikur. Að sögn forsætisráðherrans, Ali Ahmad Jalali, voru engir samningar gerðir við mannræningjana. Ítölsk blöð höfðu dregið þá ályktun að Cantoni hefði verið látin laus í framhaldi af því að móðir eins mannræningjans var látin laus úr fangelsi. Jalali viðurkenndi þó ekki að það hefði verið samkomulag yfirvalda við mannræningjana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×