Erlent

Gripinn vegna árásar á ráðherra

Danska lögreglan hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa kveikt í bíl innflytjendaráðherra Danmerkur, Rikke Hvilshoj, aðfararnótt miðvikudags. Eldurinn barst í hús Hvilshoj þar sem hún svaf vært ásamt fjölskyldu sinni en engan sakaði í brunanum. Lögregla komst á sporið eftir að fjölmiðlum barst tölvupóstur frá hópi sem nefnist Grænselöse Beate sem lýsti yfir ábyrgð á tilræðinu. Sagði þar að árásin hefði verið gerð vegna rasískrar innflytendastefnu danskra stjórnvalda. Tölvupóstsendingin var rakin til netkaffihúss á Österbro í Kaupmannahöfn og gátu vitni sem voru á staðnum þegar maðurinn sendi bréfið lýst honum. Hann var í kjölfarið handtekinn og á yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsi fyrir verknaðinn. Líklegt er talið að fleiri hafi staðið á bak við árásina en lögregla vill ekk greina frá því hversu margra til viðbótar hún leitar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×