Erlent

Mótmælendur drepnir í Eþíópíu

Að minnsta kosti 22 féllu og yfir 40 særðust þegar eþíópískar öryggissveitir skutu á mótmælendur í höfuðborg landsins, Addis Ababa, í morgun en vitni segja mörg fórnarlambanna hafa mótmælt friðsamlega. Mótmælaaðgerðir hafa verið uppi í landinu undanfarna daga í kjölfar birtingar úrslita þingkosninganna sem fram fóru í landinu þann 15. maí síðastliðinn en menn óttast að þær hafi ekki farið fram á heiðarlegan hátt. Meles Zenawi, forsætisráðherra landsins, hefur lagt bann við mótmælum eftir þingkosningarnar og sagt lögreglu að nota þær aðferðir sem til þarf svo lýðurinn róist. Flokkur Meles fékk meirihluta þingsæta í kosningunum samkvæmt opinberum niðurstöðum. Stjórnarandstöðuflokkar segja hins vegar að brögð hafi verið í tafli og að þvingunum hafi verið beitt. Þetta er þriðji dagurinn sem mótmæli eiga sér stað og er búist við enn frekara mannfalli, enda átökin hörð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×