Innlent

Skorrdælingum hótað öllu illu

"Það verður ekki tekið á Skorrdælingum með neinum silkihönskum þegar kemur að því að endurmeta þá samstarfssamninga sem við eigum við þá," segir Helga Halldórsdóttir forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar. Hún segir að Borgarbyggð hagnist ekki á þessu samstarfi og því verði það endurskoðað þegar þjónustusamningarnir renna út. Skorrdælingar höfnuðu sameiningu við fjögur sveitarfélög norðan Skarðsheiðar öðru sinni um síðustu helgi með 26 atkvæðum gegn 17 sem er mjög svipuð niðurstaða og í sameiningarkosningunum í apríl síðastliðnum. Skorradalshreppur hefur hingað til keypt ýmsa þjónustu frá nágranna sveitarfélögunum en nú virðast flestir sveitarstjórnarmenn þar ekki vera jafn jákvæðir og áður fyrir því að selja Skorrdælingum þá þjónustu. Skorradalshreppur er með samning við Borgarfjarðarsveit sem tryggir skorrdælskum ungmennum skólavist í grunnskólanum næstu níu árin. Enginn slíkur samningur er þó til um leikskólabörnin. Sveinbjörn Eyjólfsson oddviti í Borgarfjarðarsveit segir að ef til þess komi að pláss verði ónæg fyrir börn á leikskólanum Andabæ verði Skorrdælingar að finna annan leikskóla til að vista börn sín í. "Börn í sveitarfélaginu sem vinnur að uppbyggingunni ganga að sjálfsögðu fyrir," segir Sveinbjörn. Margt bendir því til þess að félagsmálaþjónusta, brunavarnir, menntamál, skipulagsmál og önnur þjónusta í Skorradalshreppi komist í uppnám þegar samstarfssamningarnir verða endurmetnir á næstu árum. Davíð Pétursson oddviti í Skorradalshreppi segir að ef til þess komi að nágrannasveitarfélögin hætti að selja þeim þjónustu verði tekist á við það þegar að því kemur. Hann segir að ótti fólks um að skipulags- og umhverfismál í Skorradal hefðu verið sett á hakann í nýju sveitarfélagi hafi ráðið mestu um það að Skorrdælingar höfnuðu sameiningunni. Að sögn Helgu halda hin sveitarfélögin fjögur sameiningarferlinu áfram en Skorrdælinga verði þó sárt saknað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×