Skorrdælingum hótað öllu illu 7. júní 2005 00:01 "
Það verður ekki tekið á Skorrdælingum með neinum silkihönskum þegar kemur að því að endurmeta þá samstarfssamninga sem við eigum við þá," segir Helga Halldórsdóttir forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar. Hún segir að Borgarbyggð hagnist ekki á þessu samstarfi og því verði það endurskoðað þegar þjónustusamningarnir renna út. Skorrdælingar höfnuðu sameiningu við fjögur sveitarfélög norðan Skarðsheiðar öðru sinni um síðustu helgi með 26 atkvæðum gegn 17 sem er mjög svipuð niðurstaða og í sameiningarkosningunum í apríl síðastliðnum. Skorradalshreppur hefur hingað til keypt ýmsa þjónustu frá nágranna sveitarfélögunum en nú virðast flestir sveitarstjórnarmenn þar ekki vera jafn jákvæðir og áður fyrir því að selja Skorrdælingum þá þjónustu. Skorradalshreppur er með samning við Borgarfjarðarsveit sem tryggir skorrdælskum ungmennum skólavist í grunnskólanum næstu níu árin. Enginn slíkur samningur er þó til um leikskólabörnin. Sveinbjörn Eyjólfsson oddviti í Borgarfjarðarsveit segir að ef til þess komi að pláss verði ónæg fyrir börn á leikskólanum Andabæ verði Skorrdælingar að finna annan leikskóla til að vista börn sín í. "Börn í sveitarfélaginu sem vinnur að uppbyggingunni ganga að sjálfsögðu fyrir," segir Sveinbjörn. Margt bendir því til þess að félagsmálaþjónusta, brunavarnir, menntamál, skipulagsmál og önnur þjónusta í Skorradalshreppi komist í uppnám þegar samstarfssamningarnir verða endurmetnir á næstu árum. Davíð Pétursson oddviti í Skorradalshreppi segir að ef til þess komi að nágrannasveitarfélögin hætti að selja þeim þjónustu verði tekist á við það þegar að því kemur. Hann segir að ótti fólks um að skipulags- og umhverfismál í Skorradal hefðu verið sett á hakann í nýju sveitarfélagi hafi ráðið mestu um það að Skorrdælingar höfnuðu sameiningunni. Að sögn Helgu halda hin sveitarfélögin fjögur sameiningarferlinu áfram en Skorrdælinga verði þó sárt saknað.
Fréttir Innlent Mest lesið Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Erlent Fleiri fréttir Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Sjá meira