Jol í sjöunda himni 1. maí 2005 00:01
Leikmenn Tottenham fóru á kostum þegar þeir tóku á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á White Hart Lane í gær. Tottenham berst hatrammlega fyrir sjöunda sætinu í deildinni, sætinu sem gefur þátttökurétt í Evrópukeppni félagsliða og þeim tókst að ná því sæti með stórsigri, 5-1. Tottenham komst upp fyrir Middlesbrough á markatölu en þessi tvö lið mætast á Árbakkaleikvangi, heimavelli Middlesbrough um næstu helgi. Það var strax ljóst hvert stefndi því Frakkinn Freddie Kanoute og varnarmaðurinn Ledley King komu Tottenham í 2-0 strax eftir tuttugu mínútur. Kanoute bætti síðan öðru marki sínu við áður en Gareth Barry minnkaði muninn fyrir Aston Villa í 3-1 rétt undir lok fyrri hálfleiks. Andy Reid og Stephen Kelly bættu síðan við mörkum fyrir Tottenham í síðari hálfleik og nokkuð ljóst að hollenski knattspyrnustjórinn Martin Jol er á fínu róli með liðið. "Mér fannst þetta vera ein besta frammistaða liðsins á þessu tímabili. Við eigum samt harða baráttu fyrir höndum um sjöunda sætið. Það væri hinsvegar stórkostlegt fyrir félagið að komast í Evrópukeppnina á næsta ári," sagði Jol sem hefur snúið gæfu liðsins á rétta braut eftir að hann tók við af Frakkanum Jacques Santini fyrr í vetur. David O'Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, var svekktur út í sína menn og sagði að léleg dekkning í föstum leikatriðum hefði gert útslagið. "Ég get ekki ásakað mína menn því þeir hafa gefið allt sem þeir eiga annað árið í röð. Við erum með lítinn hóp og ég er stoltur af því sem við höfum afrekað. Við misstum einbeitinguna í dag í föstum leikatriðum en það er ekki spurning að betra liðið vann Ég er samt ekki búinn að afskrifa Evrópusæti - það eru enn sex stig í pottinum. Leikmenn Charlton eru heillum horfnir þessa dagana og þeir fengu að kynnast refsivendi leikmanna Manchester United í gær. United fór með sigur af hólmi, 4-0, og sáu tvo mörk í hvorum hálfleik um að klára Lundúnaliðið. Paul Scholes og Darren Fletcher skotuðu í fyrri hálfleik og þeir Alan Smith og Wayne Rooney skoruðu í þeim síðari. Charlton, sem lék án Hermanns Hreiðarssonar, hefur ekki unnið leik síðan 16. mars og siglir lygnan sjó um miðja deild en Manchester United berst hatrammri baráttu við Arsenal um annað sætið í deildinni.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Russell byrjar á ráspól í Barcelona Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Magdeburg tapaði í undanúrslitum Stemningin á Times Square engri lík Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Uppgjör: Markalaust jafntefli þrátt fyrir fjörugan leik Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli „Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Dagskráin: Besta kvenna aftur af stað með risadegi Páfinn gerður að heiðursfélaga hjá Real Madrid Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Sjá meira