Sport

McGrady refsar Dallas

NordicPhotos/GettyImages
Háloftafuglinn Tracy McGrady hjá Houston Rockets, er búinn að fara illa með lið Dallas í fyrstu tveimur leikjum liðanna og hefur verið maðurinn á bak við óvænta 2-0 forystu Rockets. Hann kórónaði niðurlæginguna með hrikalegri troðslu yfir hinn 230 cm háa miðherja Dallas, Shawn Bradley. Sá stóri átti sér einskis ills von í þegar McGrady skyndilega sveif inn í teiginn og Bradley gat ekki annað en borið hendur fyrir höfuð sér og vonað það besta. Hér til hægri má sjá mynd af troðslunni, sem verður að teljast "dónaleg" og lýsir vel útreiðinni sem Dallas hefur fengið í fyrstu tveimur leikjunum.
NordicPhotos/GettyImages
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×