Nemendur hýstir í köldum gámum 6. mars 2005 00:01
Sex fjölskyldur og fjórir einstaklingar við Viðskiptaháskólann á Bifröst búa í tíu svokölluðum húsnæðiseiningum á skólasvæðinu sökum húsnæðisskorts við skólann. Nemendurnir eru ósáttir við aðstæður og segja þessar einingar vera gáma sem séu kaldir og leki auk þess sem þeir telja húsaleiguna of háa. Ennfremur reynist íbúum húsnæðiseininganna erfitt að sækja um húsaleigubætur vegna þess að einingarnar eru ekki samþykktar sem íbúðahúsnæði. Nemandi, sem ekki vildi láta nafn síns getið, sagði í samtali við Fréttablaðið að fólk í gámunum borgaði rúmar eitt þúsund krónur á hvern fermetra sem væri nánast sama leiga og í miðbæ Reykjavíkur. Þó eru nemendurnir sammála um að á Bifröst sé gott að búa en það vegi ekki þungt á móti því sem þau hafi gengið í gegnum. Þórir Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri Nemendagarðanna, vill kalla þessi húsnæði einingar og segir eðlilegar skýringar vera á þessu máli. "Borgarbyggð hefur neitað að greiða húsaleigubætur til fólks í þessum einingum því að þær eru ekki með svokallað fasta-númer," segir Þórir Páll. Fjöldi nemenda skólans býr utan nemendagarðanna og hafast við í sumarbústöðum og öðru leiguhúsnæði. "Borgarbyggð hefur samþykkt bústaðina sem nemendagarða og ætti Borgarbyggð að samþykkja þessi hús sem slík þó svo að það hafi ekki verið gert," segir Þórir Páll. Hann bendir á að fjölgunin í skólanum sé svo ör að skólayfirvöld hafi ekki undan að byggja húsnæði. Samkvæmt Þóri Páli er beðið eftir að lokið verði við lóðarteikningar af svæðinu þar sem íbúðareiningar eru, en þá verði auðveldara fyrir nemendur að sækja um húsaleigubætur. Þórir Páll vísar á bug gagnrýni nemenda um að húsaleigan sé of há og bendir á að leigan á þriggja herbergja íbúðum sé um 70 þúsund en leigan á einingunum aðeins 60 þúsund krónur. "Kvartanir vegna hitaleysis komu í kjölfar vandamála sem við glímdum við vegna hitaveitunnar en það hefur verið lagað," segir Þórir Páll.
Fréttir Innlent Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Fleiri fréttir Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Sjá meira