Innlent

Breyttu gamalli hlöðu í reiðskemmu

Það er allt hægt með viljann að vopni. Þetta vita félagar í hestamannafélaginu á Álftanesi sem höfðu enga fjárhagslega burði til að byggja reiðhöll. Í staðinn unnu tugir sjálfboðaliða nótt sem nýtan dag við að breyta gamalli hlöðu í reiðskemmu, svo hægt yrði að kenna yngstu kynslóðinni reiðlistina í skjóli fyrir veðri og vindum. Af því tilefni sýndu börnin listir sínar á hestbaki í nýju höllinni í dag, sem hlaut nafnið Sótaskjól, og sýndu svo um munar að hestamennska er fyrir alla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×