Ríkisstjórnarmyndun gengur illa 24. febrúar 2005 00:01
Brösulega gengur að koma saman starfhæfri ríkisstjórn í Írak eftir kosningarnar í síðasta mánuði. Andstæðar pólitískar fylkingar berjast um bitana. Ibrahim Al-Jaafari, sem fer fyrir bandalagi sjíta, er talinn líklegastur til þess að verða næsti forsætisráðherra Íraks þar sem sjítabandalagið fékk langmest fylgi í nýafstöðum kosningum. En málið er þó ekki alveg svona einfalt. Iyad Allawi, sem hefur verið forsætisráðherra bráðabirgðarstjórnarinnar í Írak, virðist ekki ætla að gefa starfið eftir þegjandi og hljóðalaust og hefur nú lýst því yfir að hann sé að reyna að mynda bandalag með öðrum flokkum í því augnamiði að halda embætti sínu og völdum. Al-Jaafari og Allawi eru báðir sjítar en munurinn á þeim felst kannski helst í því að Allawi leggur ekki mikla áherslu á trúarbrögðin í sinni pólitík en það gerir Al-Jaafari hins vegar. Almenningi í Írak finnst Allawi hins vegar of tengdur bandaríska setuliðinu til að hægt sé að treysta honum fyllilega og hallast því frekar að Al-Jaafari sem er álitinn óspilltur pólitíkus sem að auki nýtur stuðnings Alis Sistanis sem er áhrifamesti trúarleiðtogi sjíta. Að minnsta kosti tíu hafa fallið í valinn og 25 eru slasaðir eftir að bílsprengja sprakk í borginni Tíkrít í Írak í morgun. Árásarmaðurinn, sem var í lögreglubúningi, reyndi að aka bílnum inn á lóð lögreglustöðvar en þegar hann sá að hann myndi ekki komast lengra sprengdi hann sjálfan sig og bílinn í loft upp. Bandaríkjamenn skutu í gær úr lofti á Anbar-hérað í Írak þar sem fjöldi uppreisnarmanna heldur til. Í gær voru 29 uppreisnarmenn teknir höndum í héraðinu og eins lögðu hermenn hald á mikið af vopnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Fleiri fréttir Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Sjá meira