Verkfallsmenn fá sektir 23. desember 2005 19:30
Almenningssamgöngur í New York eru að komast í samt lag því verkfalli starfsmanna var aflýst í dag. Tjón vegna verkfallsins nemur milljónum dollara. Verkfallsmönnunum verður ekki sýnd nein miskunn og verða þeir látnir greiða háar sektir. Verkfallið stóð í þrjá daga og lamaði gersamlega stærsta almenningssamgöngukerfi landsins. Verkfallinu var haldið til streitu þrátt fyrir að það hafi verið ólöglegt, og dómari hafi dæmt verkalýðshreyfinguna til þess að greiða eina milljón dollara á dag, í dagsektir. Almennir starfsmenn sleppa heldur ekki, þar sem tveggja daga laun eru dregin af þeim, fyrir hvern einn dag sem þeir voru í verkfalli. George Pataki, ríkisstjóri, sagði að ekki kæmi til greina að sleppa mönnum við sektirnar. Þær verði greiddar. Þótt verkfallinu sé lokið þýðir það ekki að sættir hafi náðst. Verkalýðsfélagið segir að ef ekki náist samkomulag geti komið til annars verkfalls. Það yrði sömuleiðis ólöglegt, samkvæmt lögum sem banna verkföll í almenningssamgöngum. Þetta er enda fyrsta slíka verkfallið í Bandaríkjunum í tuttugu og fimm ár. New York búar þóttu bregðast ótrúlega vel við verkfallinu og gripu til ótrúlegustu ráða til þess að komast í og úr vinnu. Þannig mátti sjá virðulega verðbréfasala og bankamenn geysast áfram á línuskautum, og reiðhjól seldust fljótlega upp, í verslunum borgarinnar. Þá voru New York búar einnig ónískir á að bjóða far með einkabílum sínum, og þykir mönnum þetta enn ein sönnun þess að þegar í harðbakkann slær, taka New York búar höndum saman.
Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Fleiri fréttir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Sjá meira