Félagið fór að ráðum lækna 9. desember 2005 03:45 Jóhann Tómasson. Grein Jóhanns um Kára Stefánsson í Læknablaðinu hefur dregið dilk á eftir sér. Málinu hefur verið vísað til siðanefndar Læknafélagsins.
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, segir að hann og ráðherra hafi fallist á það á sínum tíma að veita Kára Stefánssyni lækningaleyfi gegn því að hann gegndi héraðsskyldu þegar hann kæmi til Íslands aftur eftir nám í Bandaríkjunum. Leyfið hafi verið veitt vegna þess að án þess gat Kári ekki fengið stöðu við mjög þekktan háskóla í Banadríkjunum. "Héraðsskyldan er svo lögð af árið 1985. Það er um svipað leyti og honum er veitt sérfræðingsleyfið, sem hann hefði ekki getað fengið nema hann hefði lækningaleyfi," segir Ólafur. Hann telur því ekki að Kári hafi brotið samkomulag þeirra. Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri Lækningafélags Íslands, segir að félagið hafi ekki verið að bregðast við kröfum Kára og biðja hann afsökunar með brottrekstri ritstjórans, líkt og Vilhjálmur Rafnsson, fyrrum ritstjóri Læknablaðsins, sagði í Fréttablaðinu í gær. "Málið um grein Jóhanns er tekið upp á stjórnarfundi áður en við vitum nokkuð um skoðun Kára á því. Svo eflist umræðan meðal lækna og við bregðumst við því en ekki kröfum Kára þó hann hafi komið með þær á svipuðum tíma," segir Gunnar. Vilhjálmur Rafnsson segir spurður um orð Gunnars að rekja megi ákveðna atburðarás af dagsetningunum. "Eftir stendur að orðið hefur við öllum kröfum Kára. Ég segi ekki meira en það." Fram kom í Fréttablaðinu í gær að bæði Vilhjálmur og Kári voru ósáttir við þá ákvörðun bráðabirgðaritnefndar að fella tvær setningar úr grein umræddri grein Jóhanns. Örn Bjarnason, sem sæti átti í bráðabirgðaritstjórninni, vildi ekki segja af hverju sú leið var valin en benti á yfirlýsingu bráðabirgðaritstjórnarinnar í síðasta tölublaðið Læknablaðsins. Þar segir að nauðsynlegt hafi verið að fjarlægja ummæli Jóhanns sem gefa til kynna að Kári stundi lækningar án tilskilinna leyfa. Þau ummæli væru röng líkt og landlæknir segði í sama tölublaði. "Ég lít svo á að þessu máli sé lokið og að ný ritstjórn komi algjörlega að hreinu borði," segir Jóhannes Björnsson, nýr ritstjóri Læknablaðsins. Hann segir að nýrrar ritstjórnar bíði það verk að setja ákveðnar verklagsreglur. Þær eiga meðal annars að skerpa á því hvernig beri að meðhöndla innsendar greinar.Atburðarásin1.septemberGrein Jóhanns Tómassonar birtist í Læknablaðinu.12.septemberBréf kemur til ritstjórnarmanna Læknablaðsins frá lögmanni Kára þar sem þeir eru spurðir um aðild að birtingunni og undrun Kára yfir þeirri ákvörðun er lýst.13.septemberGrein Jóhanns er tekin til umræðu á stjórnarfundi Læknafélags Íslands.20.októberKári kemur kröfum sínum á framfæri við stjórnina a) að lýst sé yfir að rangt hafi verið að birta greinina, b) greinin sé tekin af vefnum, c) Kári sé beðinn afsökunar og d) að ef þetta verði ekki gert skuli ritstjóri Læknablaðsins látinn fara.20.októberKári kærir Vilhjálm til siðanefndar.25.októberÁkveðið að vísa grein Jóhanns til siðanefndar.31.októberRitstjórnarmenn segja af sér að ritstjóra undantöldum.8.nóvemberBráðabirgðastjórn tekur til starfa.22.nóvemberNý ritstjórn tekur við Læknablaðinu.
Innlent Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Fleiri fréttir Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Sjá meira